Í blóðsprengdum nösum mér hangir nú hor
horfinn er veturinn trausti.
Megir þú andskotans volaða vor
verða sem snarast að hausti.
Dæmigert, dínarinn kominn í 1,15 krónur - og Gudda auðvitað nýfarin í verslunarferð í Barbaríið.
Ég mótmæli því harðlega að borga 900 krónur fyrir skitinn bíómiða. Að viðbættu strætófari, fram og til baka (560 kr.), gosfernu og nammi (ca. 600 kr.) er þetta ekkert annað en svívirðilegt rán um hábjartan dag...