Ţjóđbók
Hvur ćtlu séu viđurlög viđ ţví ađ skjóta skunk? Eđa mörđ?

Ţeir hafa nokkrir veriđ ađ sniglast hér í bakgarđinum undanfariđ. Og haldiđ fyrir mér vöku.
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Hvurjum er ekki sléttdrellisama um kynhneigđ verđandi eđa núverandi forsćtisráđherra?

Eina krafan sem ég geri er ađ ţessir skítsokkar hysji upp um sig brćkurnar hćtti ađ riđlast aftan á raufaumri alţýđunni.
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Hvađa lýđskrymjandi frođusnakki datt í hug ađ kalla ţessa dragúldnu dökkdimmu dagleysu sunnudag? Hvílík og önnur eins andskotahelvísk óskhyggja. Nćr vćri ađ nefna ţessa viđvarandi ljósleysu blökkudag. Ţessum undirliggjandi ömurđarlygum ţjóđfélagsins verđur ađ linna.
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Fastar bítur angist okkar
– á viđ kalda sturtu.
Dusilmenni, drullusokkar:
DRULLIĐ YKKUR BURTU!
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Allt mitt vćl og vol og breim
valdsins herrar dissa.
Skyldu opnast eyru ţeim
ef í ţau ég pissa?
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Aumleg fékk ég eyrnaskjól
ilmkerti og konfektstamp.
Helst ţó ţráđi ţessi jól
ţokkalega sterkan hamp.
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Skítţurrkađar skrattatíkur
sköttum mínum torga.
Ćtli ég verđi aftur ríkur
ef ég hćttađ borga?
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Dćmalausir drullusokkar.
Durtaher í öllu fokkar.
Sjálfumglađir sullasmokkar
sinna engu köllum okkar.
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Ég vissi ekki ađ ţađ vćri hćgt ađ pissa í sig af gremju út í óréttlćti heimsins. Ţá veit mađur ţađ.
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Haldiđi ekki ađ drulluskítapésa-bankablóđsugan í nýja Búnađarbankanum ćtli ađ lćkka launin úr frámunasvívirđisjúklega háum í stjarnfrćđisvínsgerrćđislega svimandi há, til samrćmis viđ niđursettu spensuguna í nýja Útvegsbankanum. Sćtt af honum.
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Flón sem eigiđ föđurland
fylltu raunum
ylja sér viđ eigiđ hland
á ofurlaunum.
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Ef enn einn fjandans ekkisens kjólklćddi erkibjálfinn déskotast til ađ líkja efnahagsástandinu viđ sjómennsku eđa veđur skal ég svoleiđis elta hann uppi og trođa öllu ţví sem trođiđ verđur á bólakaf í jafnt bak- sem ţverrifurnar á honum.
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Fari ţađ í fjórtán forherta fyrirbura frá Fáskrúđsfirđi, góđćriđ búiđ og ég náđi ekki svo mikiđ sem ađ kaupa mér flatskjá!
 
        1, 2, 3, 4, 5  
m.baggalutur.is Facebook Tvítill Tónlist.is iTunes YouTube Instagram RSS
Fréttir
Myglar – 24.04.23
 
Enter – 31.05.21
 
Enter – 22.10.20
 
Lesbók
Enter
 
Úr ţjóđbók

Sko til. ţetta góđa kvćđi er ţá fundiđ.

Ertu dauđur, elsku vin?
Ć, hvađ ţađ var gott.
Lokast ţá ţitt ljóta gin
og lćvíst hverfur glott.
Oní holu hnígur brátt
hrć ţitt, önd og sál.
Ég mun lyfta horni hátt
og hrópa glađur: Skál!

Ţvílík niđurlćging. Ég ađ leika jólasvein í Glćsibć. Ég! Listaskáldiđ góđa. Gaulandi gekkégyfirsjóog land og adamáttisynisjö - ţvílíkur annar eins hortittlingaskítur og leir.

Eins gott ađ ég fái nóg fyrir vćnum sjenna fyrir ţetta helvíti.

Ég hef veriđ hafđur ađ ginningarfífli! Veriđ fíflađur og prettađur! Er búinn ađ vera í frábćru gerkosmísku sambandi viđ lífveru sem ég ţóttist sannlega sannfćrđur um ađ vćri af annarri lífstjörnu, svo langt frá öllum okkar veruleika var hún í hugsun og hátterni. Svo reyndist ţetta bara vera einhver skrifstofublók úr einni skilanefndinni.

Baggalútur er hýstur af alúđ og umhyggju hjá ADVANIA