Mér finnst gott að maula ís,
mikið fínt og gaman.
Mamma er sko í mussu úr flís,
mikið er það gaman.
Er annars að pæla í því hvort þetta „sko“ eigi kannski ekkert heima þarna. Það er náttúrulega danska.
Mikið stóðu handboltastrákarnir okkar sig vel austur í Peking. Það var hrein unun að fylgjast með þeim. Að sjá þessi drengi handleika knött! Það er bara ólýsanlegt.
Svo vona ég bara innilega að þeir fái eitthvað að ríða út á þessa Fálkaorðu. Allavega fékk ég það - töluvert.
Þórður Daníel (sem reyndar skrifar sig Danéil) skrifar á fésbókarsíðu útvarpsstöðvarinnar FM957 síðastliðinn föstudag:
Halda því eða henda því á FM957, þetta er lag kvöldsins LIKE ef þú fýlar það!
Jafnvel þó fnykinn leggi efalítið af þessum tiltekna söng þá tíðkaðist á mínu æskuheimili að fíla hljómlist, en ekki fýla. Auk þess gerir það orðskrípinu 'like' engu hærra undir höfði þó það sé skrifað með hástöfum. Mín vegna má því henda þessu öllu út í hafsauga Þórður sæll.
Voðalega fer það í taugarnar á mér hvað það er glápt á mann í laugunum. Fólk kann sig ekki lengur. Það mætti halda að þetta lið hefði aldrei séð holdsveikt sálmaskáld á sundskýlu áður...