Þjóðbók
Jónas Hallgrímsson
listaskald.blogmania.co.uk
Fjær er nú fornri
frægð sinni
þjóð í djúpri dellu;
ólánsmistur
auðs og fjárglæfra
sveipar Svörtuloft.

Fráleitt axlar ábyrgð
eigin klúðurs
ráðþrota ráðherrafans;
en öll þeirra óráð
fær alþjóð
um eilífð upp borgað.
Jesús Kr. Jósepsson
Skrambans, ætlaði að elda jólasúpuna fyrir mömmu og stjúpa, en fattaði þá að ég á ekki jesserót. Hvar fæst svoleiðis? ...Eða á maður bara að nota gulrót?
 
Grímur Thomsen
Hrínum, hrínum, hemjum ekki grátinn,
harmur er að sliga Pyongyangborg.
Kommúnismans fallinn kærleiksdátinn,
Kórea, hin nyrðri, lostin sorg.
Vasaklútinn vildi ég gefa til
að vera kominn yfir hann Kim Jong-il.
Vænsta klútinn vildi ég gefa til
að vera kominn yfir hann Kim Jong-il.
 
Jesús Kr. Jósepsson
Ég vil að gefnu tilefni ítreka að jólin eru fæðingarhátíð mín – ekki Icesave.
 
Jón Sigurðsson
Bara eitt, örstutt. Næst þegar þið grafið mig upp, til að tékka á arsenikeitrun, geimverufingraförum, skotsárum eða svoleiðis dótaríi. Nenniði að láta mig fá æpadd áður en þið mokið mig aftur niður.
 
Ingólfur Arnarson
Skrambinn, ef ég hefði nú bara tekið stefnuna á Kepler 22b í staðinn fyrir þetta volaða skítasker. Þá værum við þar núna í góðu flippi í brakandi blíðu.

Að því gefnu reyndar að knörrinn hefði náð ljóshraða, eða þar um bil.
 
Jesús Kr. Jósepsson
Get ég fengið eitt á hreint?

Mega krakkarnir mínir syngja „Bíddu pabbi“ og „Pabbi þarf að vinna“ í skólanum? Og hvað með „Afi minn fór á honum rauð?“

Þetta er pínu ruglingslegt.

 
Jónas Hallgrímsson
Á degi þessum dunda ég mér gjarna
við draumkennt, pínu klæmið, vísnahnoð.
En þó að ég sé þjóðkunn ljóðastjarna
þykir mér það bragðdauft andans soð.
Versin eru væmin eins og múffa
þar vega orðin létt sem fiður hrafns.
En lengi tekur við mín skáldaskúffa
og skýlir þeim – og frægð míns góða nafns.
 
Fyrsti málfræðingurinn
Mylsnufan sendi:
„Heill þér Mylsnudreifari, rödd móðurmálsins, verndara tungunnar. Mylsnufan horfði á ambögunámuna Dans, dans, dans á laugardagskvöld. Ekki var það mikil skemmtun. Réttast væri að allir stjórnendurnir í Efstaleiti tækju pokann sinn með málfarsráðunautnum sem virðist algerlega heillum horfinn. Því heitir þessi þáttur Dans, dans, dans? Þarna er í þrígang klifað á ömurlegri dönskuslettu, dans, sem er í besta falli grátleg tilraun til að alþjóðavæða hið ÍSLENSKA orð sem ÍSLENDINGAR á ÍSLANDI skilja og þekkja; hrynskak. Þátturinn á vitaskuld að heita Hrynskak, hrynskak, hrynskak. Eða ef til vill Dansk, dansk, dansk?“

Já, það væri ef til vill ráðlegt, þykir Mylsnudreifara, sem er allskostar ótengdur Mylsnufan því hann er alls ekki Mylsnudreifari sjálfur, heldur bláókunnugur maður úti í bæ.
 
Sigurður Breiðfjörð
Mjög mér leiðast ljóðahöld
um langa, stranga gróðaöld.
Heldur kýs ég fljóðafjöld
og flennisturlað sóðakvöld.
 
Sr. Hallgrímur Pétursson
Mér finnt ég vera
jólakúla sem snjóar
þegar hún er hrist.
 
Sr. Hallgrímur Pétursson
Laus við kvabb og kjass ég er,
kertaljós og hórerí.
Það væri ráð að veita hér
viðvarandi kvennafrí.
 
Einar Ben
Til hinstu hvílu Gaddafi er genginn
gæðablóð nú þekur elsku drenginn.
Traustur vinur horfinn hugskotssjónum
– minn hugur er hjá vígaamasónum.
 
        1, 2, 3, 4 ... 44, 45, 46  
Fréttir
Númi Fannsker – 16/5/13
 
Lesbók
Úr þjóðbók

Get ekki varist því að velta því fyrir mér hvað hefði gerst ef við hefðum ekki misst bannsett apabúrið í sjóinn á leiðinni hingað.

Ó nei. Útgeimsvísitalan féll um 1.230.329.492 stig í morgun. Eftir að enn eitt bévítans slembisvartholið sogaði til sín stærstu kóbaltpláneturnar á Vetrarbrautinni.

Spurning hvort það hefur áhrif á gengi krónunnar? Kannski óbein.

Hvað á ég að þurfa að tyggja þetta oft ofaní menn? Líkaminn er stöð til að taka á móti magnan og senda frá sjer geisla. Lífið sjálft er þessi magnan eða hleðsla og utanaðkomandi kraftur tengir svo saman efni úr jörðunni til að búa líkamann skynjun og vitund.

Þetta er ekkert flókið.

Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA