Mér finnst gott að maula ís,
mikið fínt og gaman.
Mamma er sko í mussu úr flís,
mikið er það gaman.
Er annars að pæla í því hvort þetta „sko“ eigi kannski ekkert heima þarna. Það er náttúrulega danska.
Ég tjáði stúlkuhindinni í bakaríinu að rödd hennar minnti mig á kvak tyrðilmúla á feingitíma.
Ég held hún hafi ekki talið það til gullhamra.
Eruð þið ekki að fokkings djóka í mér?! Framsókn rétt að slefa í 10% fylgi. Glatað. Ef ég væri ekki of upptekinn við að snúa mér í gröfinni myndi ég koma og taka þessa lúðulaka upp á eyrunum og...
Aumt er allt raus um upptöku jarðneskra gjaldmiðla. Nóg er af stöðugum frumeigindlegum gjaldmiðlum, sem auðvelt er að taka upp, án skuldbindinga og koma þannig á fullkomnum þverkosmískum stöðugleika á okkar lífsstjörnu – auk varanlegs sambands við hinn alltumlykjandi efnahag alheimsins. Eina sem við þurfum í raun er nóg af alvöru miðlum til tenginga við útgeimsfjármálamiðstöðvar.