Ég veit að það hljómar ótrúlega, en ég hef alltaf verið nett svag fyrir svona hjáguðarunki.
Hvunær setur maður skóinn útí glugga og hvunær setur maður skóinn ekki út í glugga.
Hvílík heimska er það að eltast við úrelt farartæki sem ganga fyrir bensíni, olíu og rafurmagni. Slík ólíkindatól áttu sitt blómaskeið fyrir meir en öld síðan. Hve nær mun fólk átta sig á því að farskjóti framtíðar er hinn dreymandi hugur, sem rétt beislaður getur flutt okkur um óravíddir alheimsins, án fyrirhafnar og kostnaðar.
Ég hlýt að minna stjórnvöld einn ganginn enn á að einu réttu aðgerðir nú á erfiðum tímum er að reisa um allt land opinberar stjörnusambandsstöðvar, opnar allri alþýðu manna – og stórauka að sama skapi fræðslu um nýal og þær lífsstjörnur sem standa okkur næst í tíma og rúmi.