Óskaplega getur fólk fjargviðrast yfir smámunum. Nú halda sjálfskipaðir predikarar hvorki froðu né vatni yfir litlu bókinni ljótu um léttklæddu blökkusnáðana seinheppnu.
Hvað næst? Ætla íturvaxnir albínóar að láta banna Moby Dick?
Á skeljum heim ég skríð á ný
skjálfandi á beinum.
Við dögun hef ég dúxað í
drykkjutengdum greinum.
Alveg væri ég að fíla það að fá Fischer í þjóðargrafreitinn. Við Einsi erum löngu búnir að rífast um allt sem hægt er að rífast um. Auk þess væri það ljómandi tækifæri til að rifja upp mannganginn.