Mér finnst gott að maula ís,
mikið fínt og gaman.
Mamma er sko í mussu úr flís,
mikið er það gaman.
Er annars að pæla í því hvort þetta „sko“ eigi kannski ekkert heima þarna. Það er náttúrulega danska.
Sómakærir öðlingsdrengir allra flokka
öskra: Mútur!
Hér áður fyrr ef dekstra þurfti drullusokka
dugði hrútur.
Vó. Þeir sem vilja endilega ríghalda í kristilegt siðgæði í aðalnámskrá hefðu kannski átt að sitja á borðinu með mér og brísermettu ljóskunum tveim á Ölstofunni á laugardaginn.