Í Hörpu listin dýra dvelur
þar drýpur gull af hverjum koppi.
Hámenningin hlustir kvelur
og himneskum nær nýjum toppi.
Það vanda aðall tæpast telur
þó tónlistirnar æðri floppi.
Ef fáa miða Sinfó selur
– safnast fé af aumu poppi.
Vinur minn í fræðunum, sem ég veit að er mikill tilraunamaður í svefnherberginu kom að máli við mig og sagði farir sínar ekki sléttar. Svo virtist sem ungi, kynþokkafulli, sænski norrænufræðingurinn sem hann hefur verið að hitt á laun í handritageymslunni hafði ofboðið honum þegar sá vildi að hann læsi upp úr Konungsbók Eddukvæða, meðan á atlotunum stæði. Já það er vandlifað í þessum heimi.
Sko til. Búið að troða litla sætabrauðssnúðnum honum Palla Magg inn í Bankasýsluna. Lengi von á einum. Ég var farinn að halda að flokkshræið væri farið að úldna á safnhaug sögunnar, en nei, þá kemur eitthvað svona til að gleðja gamla steinrunna framsóknarhjartað. Þarna þekki ég ykkur gömlu refir.