Þjóðbók
Þetta er nú meiri andskotans helvítis djöfulsins endemis vitleysan í þessum helvítis kellingum alltaf hreint. Að draga mann bláeygðan og náhvítan út á þennan hispænska andskotans veraldarhjara. Sitja svo þarna eins og albínókarfi á kolagrilli og brenna upp við hysterískan undirleik stífbotna flamengóglyðrna með marglita regnhlífða ólyfan í hendi, deyfður og duglítill. Helvítis andskotans rugl. Næst er það Björgvin – og ekkert djöfuls múður.
Jónas frá Hriflu
WHOOP! WHOOP!
 
Steinn Steinarr
Gaf brabra;

ekkert eftir.
 
Dr. Helgi Pjeturss
Ég hefi af því þungar áhyggjur að amerískir kvikmyndadólgar sýna landið okkar æ oftar sem svokallaðan „tökustað“. Sérstaklega í tengslum við kvikmyndir sem ætlað er að höfða til vera af öðrum lífsstjörnum.

Ég tel aðeins tímaspursmál þar til gerkosmískar verur, t.d. geimverur fara að taka fólk, ófrjálsri hendi og án þess samþykkis, af þessum stöðum.
 
Fyrsti málfræðingurinn
Egill sendi:
„Bojobbobbobb skídlíbabbababojojojojo búbabobobobobobojojojoj heyjabobobboskiddlíbobbojojojobboboboj.“

Mylsnudreifari þakkar sendinguna og tekur undir hvert orð.
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Allt mitt verk er einskis nýtt
enginn mun þess njóta
sé því trautt á torrent ýtt
til þess dán að lóda.

Gleymist fljótt mitt fagra starf
fáir um það tala
ef allt mitt pauf og allt mitt garf
engir niðurhala.

Endi ég mitt ævipot
upp sér fáir kippa
ef bækur mínar blöð og krot
bísar ekki rippa.

Ef þú þjóð, vilt minnast mín
og milda dauðahretið.
Troddu mér í skráarskrín
og skelltu mér á netið.
 
Davíð Stefánsson
Á feisbúkkið mæðurnar mæta
við misvitrum ummælum bæta.
Deila og daðra
dissa hver aðra
og kommenta loks: sæta-sæta.
 
Sigurður Breiðfjörð
Ég hafði ekki grænan grun
en gleðifrétt í dag ég les.
Nonni segir: Hér varð „hrun“
— sem honum þótti ekkert spes.
 
Jesús Kr. Jósepsson
Hananú! Sandalinn galtómur í glugganum í morgun. Pabbi segir að ég eigi að vera löngu vaxinn upp úr því að fá í skóinn!

Hvað er hann eiginlega að gefa í skyn?
 
Gísli á Uppsölum
Tíhíhíhí. Kombar varildi nofloss aga Arnaldur!

Ehehe ... abarno flage ebr úmúsla metsala!!!

Felomo tarasa jól tromli spúrr. Tíhíhí.
 
Einar Ben
Hippsterinn nefbleikur hímir við vegg.
Hljómsveitin fannst honum óvenju slöpp.
Skimar og gónir sem úlfur á egg
að einhverju kvenslags að taka á löpp.
Að þetta grey skyldi álpast á legg,
agndofa spyr ég mig, rök eru knöpp.
Allt sem hann hefur er húfa og skegg
– við Hörpu loks króknar með fingur við öpp.
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Sandý með látum nú lendir
og limlestir sköllótta örninn.
En CNN, seg mér hvað hendir
– Jacqueline og vesalings börnin?
 
Grímur Thomsen
Berst úr dalnum fruss og fliss
– fari það í úldið piss.
Landsliðsdruslan, vertu viss
var að tapa fyrir Sviss.
 
     1, 2, 3 ... 44, 45, 46  
Fréttir
Númi Fannsker – 16/5/13
 
Lesbók
Úr þjóðbók

Fokk hvað mosi er gegt töff.

Harmi sleginn kveð ég Knút,
krónprins hvítabjarna.
Fjaraði hans ferill út
sem fokkdöpp barnastjarna.

Ég vil bara taka það fram í eitt skipti fyrir öll að ég myndi aldrei fara að grenja yfir þessu fokkings Icesavemáli. Þannig að þetta afdalaafturhaldshyski sem sjoppaði mig og klíndi fugldrituðu smettinu á mér í öll dagblöð um daginn getur bara tekið þessar heilsíður sínar og troðið rakleitt upp um langspilið á sér.

Ég hef raunar aldrei grátið nema í þetta eina skipti þegar hún Imba mín setti smjörsýruna í grjónagrautinn.

Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA