Þjóðbók
Jónas Hallgrímsson
listaskald.blogmania.co.uk
Jæja, þá veit ég hversu mörg essemmess þarf til að færa Íslandi 12 stig.

Það sem ég veit hins vegar ekki er hversu brjálaður Konráð verður þegar hann fær símreikninginn sinn.
Jón Sigurðsson
Fyrr munum vjer dauðir liggja en láta þá smán yfir þjóð vora ganga að hún gangist enn á ný undir ægivald hins norska konungdæmis. Að hæstvirtur ráðherra utanríkismála skuli dirfast svo mikið sem að ræða við þessa samviskulausu kúgara sem...
 
Halldór Kiljan Laxness
Hvaða erkifífli kom til hugar að gefa út úrval verka minna með einhvurri samræmingu, sem uppnefnd er nýmóðins stafsetning? Er ég einhvur fornmaður í réttritun? Ég veit ekki betur en ég hafi einmitt lagt mig fram um að rita verk mín með hámóðins stafsetningu, skiljanlegri öllum þorra manna og laungu tímabærri...
 
Sr. Hallgrímur Pétursson
Jæja. Þá er maður kominn heim frá Köben. Við Gudda tókum illa á því í Kristjaníu þannig að maður er soldið svona ryðgaður :) Gudda er hinsvegar í massastuði - hún skoraði nefnilega helvíti gott E í ferðinni sem hún náði að smygla til landsins í...
 
Egill Skallagrímsson
Æi krapp! Ek hjó einn í morgun. Var frekar messí. Lagði í stæði vort. Skíthæll. Ek var alveg hellaðr. Farið hefr fé betra. Ek vona bara að drullusokkrinn hafi ekki...
 
Jónas Hallgrímsson
Hólíkrapp hvað ég var ógó fullur í gær. LOL. Kallinn var helmökkaður á djamminu. og btw dyravöruðinn á Ölstofunni er fááááviti. Ég skulda ekki djakksjitt á barnum!!!
 
Einar Ben
Hvenær ætlar þessari litlu þjóð að lærast að nýta land sitt til góðra verka? Fleiri milljón tonn af vatni falla til sjávar dag hvern, algerlega ónýtt. Er það einhverjum til gagns? Allt þetta skyldi virkja, hverja sprænu, hvern poll. Áður en það verður um seinan...
 
Jóhannes S. Kjarval
Það er allt annað líf að mála uppi á Þingvöllum, eftir að ég fékk mér iPodinn. Hlustaði á Duran Duran á blastinu meðan ég málaði fullt, fullt af hrauni og tvær rjúpur...
 
Jónas frá Hriflu
Eruð þið ekki að fokkings djóka í mér?! Framsókn rétt að slefa í 10% fylgi. Glatað. Ef ég væri ekki of upptekinn við að snúa mér í gröfinni myndi ég koma og taka þessa lúðulaka upp á eyrunum og...
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Helvítis andskotans djöfulsins grábölvað skrambans matvælaverðið hefur ekki lækkað nokkurn skapaðan djöfulsins hlut. Réttast væri að taka þetta bévítans andskotans blóðsjúgandi skítapakk allt og troða því ofan í næstu...
 
        1, 2, 3 ... 45, 46, 47
m.baggalutur.is Facebook Tvítill Tónlist.is iTunes YouTube Instagram RSS
Fréttir
Myglar – 24.04.23
 
Enter – 31.05.21
 
Enter – 22.10.20
 
Lesbók
Enter
 
Úr þjóðbók

Ég vil bara taka það fram, að gefnu tilefni, að ég er ekki og hef aldrei verið í Þjóðkirkjunni. Bara svo það sé á hreinu.

Hmm. Nú er verið að fárast yfir þvoglumælgi einhverrar kratalufsu í ræðustól á alþingi. Það þykir mér týra.

Má sumsé skilja það sem svo að menn séu almennt farnir að mæta edrú í þingsali?

Snert fésbók mína, femínistadís
svo fái ég mér aldrei strákaís.
Við stöðu mína kát þú kommentar
um kynjahalla mjókuriðnaðar.

Ef fávitar sem fitla netið við
hin femínísku gildi setja á bið.
Þú karlrembur þá kallar, nógu hátt
þá klæða þeir sig aldrei meir í blátt.

Ég heyri á fésbók villtan veggjaþyt.
frá valkyrjum sem eru alveg bit.
Snert fésbók mína, femíníska dís
svo fái ég mér kynjafnaðan ís.

Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA