Mér finnst gott að maula ís,
mikið fínt og gaman.
Mamma er sko í mussu úr flís,
mikið er það gaman.
Er annars að pæla í því hvort þetta „sko“ eigi kannski ekkert heima þarna. Það er náttúrulega danska.
Kratadulur, kellingar
og kommatittir sanna
að þeirra eina ætlun var
öðrum flest að banna.
Smyr þú maga mýktum baunum,
munnvatn saltar, léttir raunum,
vinda leysir, leggst að hlaunum,
loftin fyllir úldnum daunum.
Jæja, þá er líka búið að taka af manni amfetamínið.
Hvað verður það næst? Brennivínið? Kardemommudroparnir? Heita vatnið?