Þjóðbók
Jónas Hallgrímsson
listaskald.blogmania.co.uk
Note to self: Ekki drekka rakspíra áður en maður fer í rauðvínspartý í menntamálaráðuneytinu.
Jónas Hallgrímsson
Lætur af störfum Helgi Hó
horfinn með skjöld sinn af sviði.
Kúra fær loks í kyrrð og ró
– ef Krosslafur sér hann í friði.
 
Jónas Hallgrímsson
Eiður, lukkan er með þér
hún aldrei virðist bila.
Það munar um, ef maður fer
til Mónakó – að spila.
 
Jónas Hallgrímsson
Nú er ekki svefnfriður á bekknum mínum fyrir einhverju ísklísturðu úthverfakítti í örvæntingarfullri leit að menningu.

Hvað er það við orðið „nótt“ sem fólk skilur ekki?
 
Jónas Hallgrímsson
Ég samdi minn fyrsta dægurlagatexta í dag. Hann heitir Saman hér á ný og er í svokölluðum neó-Selfossstíl:

Sitjum hér þú og ég
alltaf hér enn á ný.
Förum saman út í geim
förum saman hér á ný.

Ekki fara frá mér hér
alltaf vera hér hjá mér.
Svífum saman þú og ég
saman hér, við á ný.

 
Jónas Hallgrímsson
Nú er mér nóg boðið. Ég sem ekki kvæði um svo mikið sem örkumlaðan ánamaðk fyrr en þessi nýjasti öreigaskattur verður borinn öfugur til baka.

Maður fer ekki að geta leyft sér annað en bótalím og kannski smá Crystal Meth á sunnudögum með þessu áframhaldi.

 
Jónas Hallgrímsson
Aumingjans þjóðin mín, öll í hnút
eygir loksins von.
Jóhanna skuld okkar jafnar út
í Júróvisíon.
 
Jónas Hallgrímsson
Liggi manni lífið á
að láta skoðun fjúka
í náðhús þings og þjóðar má
þræll í leyni kúka.
 
Jónas Hallgrímsson
Jæja, þá er kjepz kominn í sparigallann. Nýstrokinn og sætur. Mættur til Eskifjarðar. Svo er bara að drífa sig niður á höfn og brosa sínu blíðasta.

Það er ekki á hverjum degi sem jólasveinninn kemur að landi hér á skerinu.
 
Jónas Hallgrímsson
Skrambinn. Nú man ég ekki fyrir mitt litla líf á hvorum landsfundinum ég klæddi mig úr fötunum, stríkaði gegnum salinn og út á götu.

Andskotans absint.
 
Jónas Hallgrímsson
Helvítisfokkingfokk. Gleymdi enn og aftur að sækja um þessi bévítans listamannalaun. Eina huggunin að losna við niðurlæginguna sem fylgir því að fá þau.
 
Jónas Hallgrímsson
Vér auðmenn á svakalegt svall fórum,
þar svignuðu borð undan hnallþórum.
Þar menn höfðu mætur
og misjafnar gætur
á auðveldum íslenskum karlhórum.


 
Jónas Hallgrímsson
Hægri, vinstri, vestur, austur
vetur, sumar, upp og niður
Ef ég væri ungur, hraustur
ég allt það klæddí tjörog fiður.
 
        1, 2, 3, 4, 5, 6, 7  
Fréttir
Enter – 3/6/13
 
Númi Fannsker – 28/5/13
 
Lesbók
Enter
 
Úr þjóðbók

(Hann:)
Eia!
Eia sameining!
Eia kaupréttarsamningar!
Eia spillíng!
spillíng í OR
hver fór í OR
mætti á stjórnarfundinn og hló
stjórnarfundinn og stjórnarfundinn
og gerðist milli?
Villi!
Kondu Villi
Kondu litli millivilli
að kyssa bíngapínga
uppí OR!

(Borgarbúar:)
Svei attan!


Ísland er eins og Evrópa
og Evrópa er köld og djúp
eins og vitund mín sjálfs.

Og Ísland er eins og mynd,
sem er máluð af Evrópu
og mér til hálfs.

Og Ísland og Evrópa
renna veglaust til þurrðar
inn í vitund mín sjálfs.

Hmm. Þetta er alveg jafn gersamlega óskiljanlegt svona.

RIKKI G. skrifar á fésbókarsíðu útvarpsstöðvarinnar FM957 í morgun:

„Sæææælar! Hver er Facebook notkun þín á dag í klukkutímum talið??“.

Stuðávarpið 'Sæææælar!' kannast ég ekki við í þessari mynd. Þrjú æ eru feykinóg til áhersluauka. Auk þess þykir mér óþarfa bruðl að nota tvö spurnarmerki í lok setningar. Nema maður sé þeim mun áfjáðari í að fá svar um hæl – sem máske var raunin í þessu tilviki.

Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA