Jájá - nú er Björk farin að hrópa það hingað og þangað að hinir og þessir eigi að lýsa yfir sjálfstæði. Og heilu stórveldin pissa á sig yfir því!
Iss. Ég fattaði nú upp á þessu langt á undan henni sko...
Búið að hækka kardemommudropana! Og það rétt fyrir helgi!
Svona fer maður ekki með þjóðskáld!
Mikið óskaplega voru eldhúsdagsumræðurnar um daginn skemmtilegar. Frábært sjónvarpsefni. Yndislegt alveg hreint. Og mikið var gaman að sjá hvað þingmenn Reykjavíkur báru af landsbyggðarlýðnum.