Mér finnst gott að maula ís,
mikið fínt og gaman.
Mamma er sko í mussu úr flís,
mikið er það gaman.
Er annars að pæla í því hvort þetta „sko“ eigi kannski ekkert heima þarna. Það er náttúrulega danska.
Mikið hlakka ég nú til að fara upp á Þingvelli og liggja þar með trönurnar fram á haust. Mála kannski soldið hraun. Bara að muna að taka með frjóofnæmispillurnar svo þetta endi ekki eins og í fyrra...
Óska hér með eftir að vera boðið í gott júróvisjónpartí í kvöld. Lofa að setja ekkert út á lagasmíðarnar og að fara ekki að semja neitt á heimilistækin eftir miðnætti.
Hjó mann í herðar niðr á Hverfisgötunni um helgina. Fyrir misgáning. Löggan kom, alveg snar og sagði at ek hefði brotið lögreglusamþykkt. Þvílíkt þvaðr. Þat var ekki eins og ek væri at míga utan í húsvegg. Blábjánar.