Þjóðbók
Jónas Hallgrímsson
listaskald.blogmania.co.uk
feta fjármál
fjandans stigu
velkjast um vegu heljar
öll er upphefð
aldar nýrrar
kaldri fortíð falin

lepja dauða
drambsins þrælar
brátt úr bleikri skel
fallin er króna
fallin æra
Íslands óskabarna

Jónas Hallgrímsson
...er nú vinur Konráð Gíslason, Tómas Sæmundsson og 1 aðrir.
 
Jónas Hallgrímsson
Kynin eru kostum prýdd
kynhlutverk sín leika.
Í kyngervi um kynjavídd
kyngerð bæði reika.
 
Jónas Hallgrímsson
Ill eru örlög
útræstrar þjóðar
fetar nú helveg flest.
Fallið er frækið
fyrra gengi
ónýtur orðstír og sæmd.
Fúll er fnykur
fregna í lofti
þögul er vegmóð þjóð.
Dísir sem dagskrá
dýrðlegar kynntu
farnar af flötum skjám.
 
Jónas Hallgrímsson
Pínleg standa prestagreyin
í predikunarstólum.
Ekki vilja gifta geyin
en ganga þó í kjólum.
 
Jónas Hallgrímsson
Í kjörklefanum vil ég vega
valkosti, og skegg mitt strjúka.
Að lokum sest ég sæmilega
sáttur oná þá og kúka.
 
Jónas Hallgrímsson
Hættu að gráta Hannes minn,
þú heiðurssómapiltur
Ég skal vera vinur þinn
verði Davíð trylltur.

Hættu að gráta Hannes minn,
þó hugsjón þinni blæði.
Ég skal þerra þína kinn
uns þrýtur Davíð bræði.

Hættu að gráta Hannes minn,
þú hreini frelsiskjaftur.
Ég skal breiða út boðskapinn
brjálist Davíð aftur.
 
Jónas Hallgrímsson
Ógn og skelfing, hugur hrýs.
hvernig gastu, Ernest ... djís ...
skilið við þig undir ís
eldvatnslýs í kassavís?

Hefðann blessað viskuvatnið þambað
– vímaður á pólinn hefði rambað.

 
Jónas Hallgrímsson
Nú Icesave er liðið í aldanna skaut
og aldrei það kemur til baka
– nemef vort fallvalta forsetaskraut
fúlsar við þessháttar andstyggðargraut
og neitar við nafn sitt að haka.
 
Jónas Hallgrímsson
Ég á afmæli í dag,
ég á afmæli í dag.
Ég á afmæli ég sjálfur,
ég á afmæli í dag.
 
Jónas Hallgrímsson
Hér hvílir
harmur þjóðar
grafinn, gleymdur
glópum öllum.
Far í friði
friðarspillir;
Íslands auður
afskrifaður.
 
Jónas Hallgrímsson
Sáuð þið hana systur mína?
sú var orðin helst til full.
Kokhraust innbyrti áfengt sull;
loks fór hún glaseygð að gráta og hrína.

Af henni ganga ýmsar sögur;
oft hún lyftir sér á kreik
ítrekað fer hún í flennisleik
– sjón sem að seint þykir fögur.

Næfurþunn á nýjum degi
– með nýælt gallið út á kinn –
eigrar hún uns unnustinn
finnur hana á förnum vegi.
 
Jónas Hallgrímsson
Svei mér þá. Nú er eitthvert auglýsingaviðrinið búið að dubba upp einhvern þunnhærðan smjörspikaðan skeggapa í minni mynd á heilli opnu í Fréttablaðinu. Til að auglýsa einhverjar ekkisens kaffivéla- og stofublómatryggingar! Þessu uppstrílaða greppitrýni fylgir svo einkar ósmekklegr tilvísun í það þegar ég hrundi blekhellaður niður tröppurnar úti í Köben forðum.

Hvað næst? Á að birta heilsíðumynd af því þegar við Nonni Sig fengum sífilisið?
 
        1, 2, 3, 4, 5, 6, 7  
Fréttir
Enter – 3/6/13
 
Númi Fannsker – 28/5/13
 
Lesbók
Enter
 
Úr þjóðbók

Einhverjir hafa velt því fyrir sér hvaða skoðanir ég hafi á Evrópusambandsaðild Íslands, jafnvel gert mér þær upp. Ranglega.

Vitanlega styð ég hana heils hugar. Enda heyrir Evrópa blessunin ekki undir Danmörku, að því er ég best veit.

Aukinheldur treysti ég Evrópusambandinu töluvert betur til að glopra ekki niður sjálfstæði Íslands; þjóð, tungu og sögu, en þvermóðskufullum og valdagírugum bavíönum, svona almennt séð. Gildir þá einu hvort umræddir bavíanar eru íslenskir eða danskir.

Ísland er eins og Evrópa
og Evrópa er köld og djúp
eins og vitund mín sjálfs.

Og Ísland er eins og mynd,
sem er máluð af Evrópu
og mér til hálfs.

Og Ísland og Evrópa
renna veglaust til þurrðar
inn í vitund mín sjálfs.

Hmm. Þetta er alveg jafn gersamlega óskiljanlegt svona.

Ég tek þetta aftur með hinn vangan.

Ég skal svoleiðis taka þessa útrásarplebba upp á eyrunum næst þegar ég sé þá.

Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA