Vinur minn í fræðunum, stór og stæðilegur, afar fróður og með mikinn og einlægan áhuga á hvers kyns afkimum mannlegrar hegðunar kom til mín mað grátstafinn í kverkunum og sagðist ekki geta þetta lengur. „Geta hvað?“ spurði ég sakleysislega þó ég vissi fullvel að hann væri að vísa til eldheitra ástaratlota sinna og feitlagna nærsýna bókavarðarins með uppsnúna efrivararskeggið í ónefndri matvöruverslun hér í bæ...
Mér þykir vanta bæði framsýni og stórhug í alla umræðu um skipulagsmál hér á landi. Ótrúleg skammsýni ræður ríkjum. Framtíðin er neðanjarðar.
Við þurfum að byggja upp öflugt neðanjarðarhraðlestakerfi sem nær milli alla þéttbýlisstaða landsins og yfir á nærliggjandi eyríki og heimsálfur. Sanniði til, þegar slíkt kerfi er komið í gagnið þarf enginn lengur á flugvelli að halda.
Þórður Daníel (sem reyndar skrifar sig Danéil) skrifar á fésbókarsíðu útvarpsstöðvarinnar FM957 síðastliðinn föstudag:
Halda því eða henda því á FM957, þetta er lag kvöldsins LIKE ef þú fýlar það!
Jafnvel þó fnykinn leggi efalítið af þessum tiltekna söng þá tíðkaðist á mínu æskuheimili að fíla hljómlist, en ekki fýla. Auk þess gerir það orðskrípinu 'like' engu hærra undir höfði þó það sé skrifað með hástöfum. Mín vegna má því henda þessu öllu út í hafsauga Þórður sæll.