„Til greina kemur að taka upp atriði fyrir nýja Star Trek-mynd á Íslandi í sumar“ segir í einum falsmiðlanna. Vita þessir blessuðu blaðasnápar ekki að sögusvið Star Trek er ekki bara í fjarlægum útgeimi, heldur aukinheldur í framtíðinni? Bjálfar.
Hæli veit á hóli
hirðmenn þrír þar hírast.
Þrár er þeirra herra
þekkist valdboð ekki.
Ólmast bál án beisla
björt í Svörtuloftum.
Efa eg að Davíð
út úr hlýju flýji.
Jæja, dreif mig í dag og sagði mig úr þjóðkirkjunni. Komst að því að ég var skráður þar sjálfkrafa útaf mömmu.
Fólk varð auðvitað mishresst með þetta, skiljanlega. Best þótti mér samt konan fyrir aftan mig í röðinni – hún kallaði mig Júdas.