Ţjóđbók
Allt mitt verk er einskis nýtt
enginn mun ţess njóta
sé ţví trautt á torrent ýtt
til ţess dán ađ lóda.

Gleymist fljótt mitt fagra starf
fáir um ţađ tala
ef allt mitt pauf og allt mitt garf
engir niđurhala.

Endi ég mitt ćvipot
upp sér fáir kippa
ef bćkur mínar blöđ og krot
bísar ekki rippa.

Ef ţú ţjóđ, vilt minnast mín
og milda dauđahretiđ.
Troddu mér í skráarskrín
og skelltu mér á netiđ.
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Andskotans eilífđar ömurđarlyddur eru ţetta. Á nú líka ađ hafa af manni helvítis verđbólguna?!
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Nú eru menn ađ missa ţvag og rćnu yfir einhverri amorískri beikonvafđri hamborgaralufsu í sćtabrauđi – Craz E Burger heitir dýrđin dísćta.

Isspiss. Ég held ađ ţessar kaloríufćlnu hengilmćnur ćttu ađ kíkja í kotiđ til mín og fá sér flotleginn ţrumara međ ţumlungţykkri súrri blóđmör og hömsum.

Ţađ er upplifun fyrir bragđlaukana.
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Ţessi ykkar fjárlög feitt
fimbuldrellisjúga.
Nú sem forđum, út í eitt.
eruđ ţiđ ađ ljúga.
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Skítafokkingsflennidrull
fimbulskrattanspína.
Klóakvelgjuklígjusull
kreist úr bakrauf svína.
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Ţolađ gat breikiđ og bítboxiđ
ballett og annađ tađ
en djöfulsins andskotans dítoxiđ
– ég dreg mín mörk viđ ţađ.
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Dólgurinn viđ Downingstreet
dansar um á hálum ís.
Sá má éta súran skít
sem og ţađ sem úti frýs
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Flatan fyllir skjáinn
fokking skítapakk.
Babblar út í bláinn
– breyta núna, takk.
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Á fúna jálka falla tjöld
- ferlegt er ađ heyra
ţví kynslóđ sú sem sest viđ völd
sökkar jafnvel meira.
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Skuldir mínar allar á ég sjálfur
öđru mun ég glata.
Ţví má tuttugu prósenta tilberagjálfur
í trompet ykkar rata.
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Kröfuherptir kaupamenn
-krapp nú öskra hólí-.
Ţá hengir upp á eyrum senn
sú engilblíđa Joly
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Hvurjum er ekki sléttdrellisama um kynhneigđ verđandi eđa núverandi forsćtisráđherra?

Eina krafan sem ég geri er ađ ţessir skítsokkar hysji upp um sig brćkurnar hćtti ađ riđlast aftan á raufaumri alţýđunni.
 
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Hvađa lýđskrymjandi frođusnakki datt í hug ađ kalla ţessa dragúldnu dökkdimmu dagleysu sunnudag? Hvílík og önnur eins andskotahelvísk óskhyggja. Nćr vćri ađ nefna ţessa viđvarandi ljósleysu blökkudag. Ţessum undirliggjandi ömurđarlygum ţjóđfélagsins verđur ađ linna.
 
        1, 2, 3, 4, 5  
Fréttir
Enter – 3/6/13
 
Númi Fannsker – 28/5/13
 
Lesbók
Enter
 
Úr ţjóđbók

Í Hörpu listin dýra dvelur
ţar drýpur gull af hverjum koppi.
Hámenningin hlustir kvelur
og himneskum nćr nýjum toppi.
Ţađ vanda ađall tćpast telur
ţó tónlistirnar ćđri floppi.
Ef fáa miđa Sinfó selur
– safnast fé af aumu poppi.

Nú er mér nóg bođiđ. Ég sem ekki kvćđi um svo mikiđ sem örkumlađan ánamađk fyrr en ţessi nýjasti öreigaskattur verđur borinn öfugur til baka.

Mađur fer ekki ađ geta leyft sér annađ en bótalím og kannski smá Crystal Meth á sunnudögum međ ţessu áframhaldi.

Hvađ er ţessi ameríski andskotans ístrubelgur ađ tuđa um hnattrćna hlýnun? Ég ćtti ađ taka ţennan gleiđmynnta, tannglansandi trúđ í vist, svo sem eins og einn vetur. Sjáum hvort hann slćr svartkalinni hendi á móti nokkrum aukagráđum á helvítinu honum selsíusi eftir ţađ.

Baggalútur er hýstur af alúđ og umhyggju hjá ADVANIA