Þjóðbók
Steinn Steinarr
stonsarinn.ihatethereds.tv
Gaf brabra;

ekkert eftir.
Steinn Steinarr
Mér þykir
það sorglegast
við Alþingi
að Siggi Sigurjóns
sé orðinn of gamall
til að leika
Birgi Ármannsson
í Skaupinu
 
Steinn Steinarr
Jæja. Þá er kjepz tilbúinn með nýjan 180 erinda kvæðabálk - frá þeim sömu og færðu ykkur Tímann og vatnið, stútfullan af aukaefni. Get bara ómögulega ákveðið hvort hann á að heita 'Blúbbs!' Eða 'Plúbbs!'.
 
Steinn Steinarr
Æ æ æ æ æ æ æ
æ æ æ æ æ æ
æ æ æ æ æ æ æ
æ æ æ æ æseif
 
Steinn Steinarr
Idol stjörnuleit er eins og hrúga af hundaskít
og hrúgan er köld og djúp
eins og Idol stjörnuleit mín sjálfs.

Og Idol stjörnuleit er eins og mynd,
sem er máluð hundaskítshrúgunni
og mér til hálfs.

Og Idol stjörnuleit og hrúgan af hundaskítnum
renna veglaust til þurrðar
inn í vitund mín sjálfs.
 
Steinn Steinarr
Ísland er eins og Evrópa
og Evrópa er köld og djúp
eins og vitund mín sjálfs.

Og Ísland er eins og mynd,
sem er máluð af Evrópu
og mér til hálfs.

Og Ísland og Evrópa
renna veglaust til þurrðar
inn í vitund mín sjálfs.

Hmm. Þetta er alveg jafn gersamlega óskiljanlegt svona.
 
Steinn Steinarr
Ég er að hugsa um að skrifa annan ljóðaflokk um tímann og vatnið. Ég hef það á tilfinningunni að fólk hafi almennt ekki fattað hvað ég var að meina.
 
Steinn Steinarr
Þá er kjeps skriðinn yfir hundrað ára múrinn. Ekki seinna vænna að byrja að blogga.

Mig langar að byrja á því að ítreka það (til að fyrirbyggja allan misskilning (og rangtúlkanir (sumra))) að tíminn er eins og vatnið.
 
Fréttir
Enter – 3/6/13
 
Númi Fannsker – 28/5/13
 
Lesbók
Enter
 
Úr þjóðbók

Kreppir að í kaldri vík
konungsríkið er að brenna.
Ef ég mínum aldri lýk
– er það líka mér kenna?

Var að spá í að henda upp framboði til stjórnlagaþings. Ákvað svo bara að kaupa fullt af nammi og glápa á sjúkraliðasápu með Imbu í staðinn.

Féll af himnum stjarna stríð
stóð hún við um skamma hríð
fór of hvellt um hvelin víð
hvíl í friði Ledger, Heath

Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA