Frétt — Spesi — 12. 8. 2002
Nýstárleg endajaxlataka
Jóna sýnir blaðamanni nýju aðferðina

Jóna Stefánsdóttir tannlæknir hefur þróað nýja aðferð við endajaxlatöku sem hún kallar "bakdyraleiðina". Byggir aðferðin á því að tannlæknirinn opni sér leið í gegnum hnakka sjúklingsins og dragi endajaxlana út þá leið.

"Þetta er náttúrulega bæði þægilegra fyrir mig og sjúklinginn," sagði Jóna tannlæknir í spjalli við Baggalút. "Ég fæ betra aðgengi og sjúklingurinn þarf ekki að gapa allan tímann."

Þá kveðst Jóna einnig setja rennilás á hnakka sjúklingsins til að hún eigi auðveldara með að fjarlægja fleiri jaxla ef þess gerist þörf síðar meir.

UNGUR MAÐUR

með yfirgripsmikla þekkingu á kjarnaofnum, óskar eftir starfi úti á landi.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: