Frétt — Númi Fannsker — 12. 8. 2002
Olivia Newton-John kemur ekki til Íslands!
Olivia Newton-John er alls ekki á leiðinni til Íslands

Hinn þekkta leik- og söngkona Olivia Newton-John, kemur ekki til Íslands á næstunni og sennilega aldrei. Í stuttu viðtali við blaðamann Baggalúts sagðist hún aldrei hafa heyrt á landið minnst og gæti ekki ímyndað sér að vitiborið líf þrifist á stað sem Íslandi.

Aðra sögu er að segja af stallsystur Oliviu, Elisabeth Taylor, en hún flaug yfir Ísland á dögunum og mun hafa veifað aðdáendum sínum milli skýjanna.

Jón!

Mér þykir vænt um þig.

Ö.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: