Frétt — Enter — 22. 10. 2001
Steingrímur hvetur alþingismenn til að skerða ekki skegg sitt
Steingrímur Jamal í pontu

Steingrímur J. Sigfússon hvatti í setningarræðu sinni félaga sína á Alþingi að skerða ekki skegg sitt. Hann sagði það vera áhyggjuefni að forysta landsins væri upp til hópa skegglaus og gæti það "...alið á fordómum og skert traust alþjóðasamfélagsins á íslensku stjórnkerfi."

Steingrímur hvatti ennfremur til að þingmenn sneru í austur á þingfundum og ennfremur væri rétt að þingkonur hefðu einungis eitt sameiginlegt atkvæði á þingfundum "til bráðabirgða".

Þá tilkynnti Steingrímur að hann vildi hér eftir vera kallaður Steingrímur Jamal.

Akurnesingar!

Tökum vel á móti innflytjendunum! Eigum mikið magn af tjöru og fiðri á sérstöku tilboðsverði.
Netagerð Nikulásar.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: