Frétt — Númi Fannsker — 28. 6. 2002
Hneyksli á samningafundi um lausn Svalbarðadeilunnar
Samninganefndin, túbuleikarinn Sergei er lengst til vinstri.

Mikið upphlaup varð á fundi nefndar um lausn Svalbarðadeilunnar þegar upp komst að túbuleikari nefndarinnar var á mála hjá rússnesku leyniþjónustunni KGB. Að sögn fulltrúa Íslands, Jónasar Jónatanssonar, banjóleikara, var æfing í fullum gangi þegar glöggur klarínettuleikari rak augun í lyklakippu túbuleikarans, merkta KGB. Túbuleikarinn var umsvifalaust sendur heim. „Þetta er mjög leiðinlegt“, sagði Jónas. „Okkur fannst Sergei reyndar alltaf vera grunsamlega góður túbisti, af endurskoðanda að vera“.

Allt fyrr perrann!

Perrajakkar, perrabuxur, perraskór, perrasokkar.

Perragarðurinn.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: