Frétt — Herbert H. Fritzherbert — 27. 6. 2002
Vopnaverksmiðja á Reyðarfjörð
Líkan af verksmiðjunni

Ríkisstjórn Íslands á í viðræðum við ísraelska fyrirtækið Sion Arms um byggingu vopnaverksmiðju á Reyðarfirði. Að sögn Davíðs Oddssonar, forsætisráðherra, er þessi samningur afar mikilvægur fyrir íslenskt atvinnulíf í ljósi þess að viðræður um byggingu álvers runnu út í sandinn. "Svo er líka ánægjulegt að geta liðsinnt Bandaríkjaforseta í baráttunni við öxul hins illa", bætti forsætisráðherra við. Reiknað er með að verksmiðjan muni skapa allt að 12.000 störf, þar af 70% í hátækniiðnaði. Í fyrstu mun aðallega vera um framleiðslu á Kafelnikov hríðskotabyssum og úraníum handsprengjum að ræða, en hvorutveggja þykja afar umhverfisvæn vopn. "Við skulum ekki gleyma því að það er afar mikilvægt fyrir okkur Íslendinga að glata ekki ímynd okkar sem hreinni þjóð í óspilltri náttúru", sagði forsætisráðherra að lokum.

Kona óskast

hið fyrsta til að deila með þrifalegum karlmanni á fertugsaldri vel einangruðu neðanjarðarbyrgi meðan yfirvofandi heimsendir gengur yfir. Má ekki reykja.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: