Sólveig Pétursdóttir, dómsmálaráðherra, skipaði í morgun Deng Sverrisson í embætti Ríkislögreglustjóra og Wang Hermannsson yfirmann útlendingaeftirlitsins - tímabundið. Ráðningin þykir marka tímamót, þar sem þetta er í fyrsta skipti sem íslenskir embættismenn af austrænu bergi brotnir eru skipaðir og þykir hún lýsandi fyrir aukið umburðarlyndi stjórnvalda gagnvart útlendingum.
Greiðendur afnotagjalda RÚV
ekki missa af táknmálsfréttum. Nýjar þulur. Ný tákn.
Ríkisútvarpið – Sjónvarp
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.