Frétt — Númi Fannsker — 6. 6. 2002
Vel heppnað fjáröflunarkvöld Kattholts
Frá vinstri: Siv Friðleifsdóttir, Magnús Skarphéðinsson og Linda Pé

Stelpurnar í Kattholti héldu vel heppnað fjáröflunarkvöld á Broadway í gærkvöldi. Þemað var að sjálfsögðu kisur og var margt um manninn, enda kjörið tækifæri til að klæða sig upp. Að sögn Lindu Pé, skipuleggjanda kvöldsins fór allt vel fram og söfnuðust alls um sjöþúsund krónur sem verður varið til eldsneytiskaupa. Heiðursgestur kvöldsins var Magnús Skarphéðinsson kattavinur, en hann kom klæddur sem Batman (sem er alls ekki kisa, heldur leðurblaka!).

Reikistjarna

lítið notuð reikistjarna ásamt þremur tunglum fæst fyrir lítið, hentar vel fyrir lítil súrefnisháð lífríki. Frábær staðsetning í fallegu sólkerfi. Skipti á minni plánetu koma til greina.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: