Afar hávaxinn Vestfirðingur, Ingó Sveinbjarnarson veiddi á dögunum hákarl með berum höndum í Suðureyrarhöfn. Að sögn Ingós var hákarlinn nokkuð sprækur og beit hann m.a. í fingur og handarbak, en Ingó er býsna hraustur piltur og lét það ekki á sig fá. Að sögn Ingós verður hákarlinn stoppaður upp, en þar sem hákarlinn er í stærra lagi verður honum komið fyrir utandyra.
Borgarlögmenn
óskast til að veita ráðgjöf á öllum sviðum borgarmála. Fullum trúnaði heitið. A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.