Frétt — Myglar — 6. 5. 2002
Draumastúlkan af Internetinu reyndist vera pabbi gamli
Þeir feðgar skemmtu sér konunglega á stefnumótinu

Júlíus Engilbertsson, grunnskólanemi, taldi sig hafa kynnst draumastúlkunni á einni af spjallrásum Internetsins. Þegar hann hugðist hitta hana á stefnumóti komst hann hins vegar að því að þar var karl faðir hans á ferð undir dulnefni. "Hvernig átti ég að vita að þetta væri strákurinn? Hann sagðist vera í áttunda bekk, bölvaður lygalaupurinn," sagði Engilbert faðir Júlíusar um málið.

Vinur óskast

þarf að hafa brennandi áhuga á fiðrildasöfnun, póló og Leonard Cohen. A.v.á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: