Frétt — Enter — 22. 4. 2002
Búálfur finnur sjaldgæfan eldspýtustokk
Ejnar með eldspýtustokkinn góða - hann verður á landinu út vikuna

Norskur búálfur, Ejnar Svenqvist, sem er staddur hér á landi vegna alþjóðaráðstefnu huldufólks, varð fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu að öryrki kastaði eldspýtustokk í höfuðið á honum. Fékk búálfurinn vott af heilahristingi, en atvikið var þó ekki alslæmt, því stokkurinn reyndist afar sjaldgæfur.

"..þetta er úr skoskri seríu frá 19. öld," sagði Ejnar, sem sjálfur á stórt safn eldspýtustokka. "..það sem var merkilegast við þessa stokka var að þeir innihéldu ekki eldspýtur, heldur piparmyntur - en það er mjög sjaldgæft."

Borgarlögmenn

óskast til að veita ráðgjöf á öllum sviðum borgarmála. Fullum trúnaði heitið. A.v.á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: