Bein sem talin eru vera úr Geirfinni Einarssyni, fundust í kjallara Seðlabankans á dögunum. Fundurinn styður mjög kenningar fræðimanna þess efnis að Geirfinnur hafi í raun verið fórnarlamb viðamikils samsæris ríkisins og frímúrara, með þátttöku Gyðinga og læknafélagsins. Aðrir segja beinin bera þess glögg merki að Geirfinnur hafi fyrir slysni drukkið uppþvottalög og látist af þess völdum.
Vínilplata
þar sem Richard Anthony syngur helstu smelli sína fæst gefins. A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.