Frétt — Enter — 9. 4. 2002
Síamstvíburar úr Húnaflóa sjá fram á langþráðan aðskilnað
Bjössi og Himmi fá vonandi bót meina sinna fljótlega

Síamstvíburarnir Björn og Hilmar hafa verið samvaxnir á fingrum og skeggi í fjölmörg ár og hafa mátt þola háðsglósur nábúa sinna fyrir vikið.

"Svona hefur þetta alltaf verið," segir Bjössi og Hilmar tekur undir: "Já, fötlun okkar hefur aldrei mætt skilningi, ekki einu sinni hjá stjórnvöldum - því lög um síamsfæðingar ná ekki yfir okkur þar sem við erum ekki blóðskyldir. Bjössi var sko ættleiddur."

Bræðurnir sjá þó fram á bót meina sinna fljótlega. "..já, við ætlum að leita örþrifaráða með vorinu, en við eigum pantaðan tíma á hárgreiðslustofu á Blönduósi í júní. Svo er bara að bíða og sjá til," segir Bjössi glaðbeittur að lokum og horfir björtum augum til framtíðar.

Sniffarar

Ný sending af öllum oktönum!

Skeljungur

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: