Frétt — Enter — 8. 4. 2002
Á alltaf nóg súkkulaði
Tóbías var í Hljómskálagarðinum í dag og bauð vegfarendum hnetusúkkulaði.

Lögmaðurinn Tóbías Runólfsson, sem nýlega kom heim úr námi frá Englandi er gæddur sérstökum hæfileikum, en hann á alltaf nóg af súkkulaði.

„Þetta hefur alltaf verið svona,“ sagði Tóbías í viðtali við Baggalút. „Þegar ég var yngri var ég alltaf með nóg af súkkulaði handa öllum í bekknum. Eins þegar ég var úti að læra, ég var alltaf með feykinóg handa öllum sem vildu. Þetta ætlar ekkert að eldast af mér.“

Ráðvilltur og reiður?

Upphafssíður í miklu úrvali. Gular, rauðar, grænar og dökkbláar. Internet Villa, Korputorgi.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: