Frétt — Enter — 25. 3. 2002
Fundu snjó!
Það var mikil gleði meðal leiðangursmanna þegar snjórinn fannst

Hópur íslenskra ofurhuga og skíðamanna hefur undanfarið ferðast um sunnanvert landið í leit að snjó en sem kunnugt er hefur lítið bólað á fannfergi hér syðra - leitin bar loks árangur í dag þegar leiðangursmenn fundu dálitla hvilft með fönn í.

"Þetta er ólýsanleg tilfinning, við gátum meir að segja rennt okkur þetta 30 metra," sagði Óli Mogensen, leiðangursstjóri. "Við höfðum þegar í stað samband við veðurstofuna og voru þeir jafn gapandi hissa og við. Þeir telja líklegt er að hér sé um leifar Langjökuls að ræða!"

Nýtt á herrann

Flónelsjakkar, flónelsbuxur, flónelsnáttföt.
Fjármálaráðuneytið – aukin upplifun í alfaraleið.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: