Viðeyskur tannlæknir býður nú upp á nýstárlega þjónustu fyrir langþreytta borgarbúa, eða holuviðgerðir á götum.
„Þetta eru heilmikil uppgrip. Fólk hefur tekið þessu afskaplega vel. Margir hafa farið að skæla af gleði.“
Aðspurður segir hann það töluvert kostnaðarsamt að setja tannfyllingar í malbikið, því mikið magn fer í hverja holu — „…og þær eru ógeðslega margar!“ En fólk virðist tilbúið að greiða umtalsverðar fjárhæðir fyrir að halda geðheilsunni.
„Í kjölfarið þarf fólk svo að passa sig bursta göturnar vel og úða flúor yfir þær reglulega. En muna bara að horfa til hægri og vinstri svo Karíus og Baktus komi ekki og keyri það niður.“
HEIMASÍÐUR, HEIMASÍDUR, HEIMASÍDUR !!!
Vegna mistaka við innkaup höfum við umfram lager af flippuðum og hressum heimsíðum. Þarftu að koma fyrirtæki á framfæri? Ertu í ástarsorg? Eða bara atvinnulaus? Hvernig væri að skella sér á nýja heimsíðu hjá okkur???
Heimasíðurgerð Flippa
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.