Ný skýrsla um hárvöxt og almenna hárhirðu Eyþórs Arnalds var lögð fram um helgina. Skýrslan er unnin af félagi hárgreiðslumeistara og er hún vægast sagt kolsvört. En þar segir meðal annars:
„Þrátt fyrir óheyrilegt fjármagn, tíma og skipulagningu sem farið hefur í þetta hár á undanförnum 20 árum er það langt frá því að ná þeim menningarlegu markmiðum og sjónrænu gæðum sem það náði þegar það var upp á sitt besta — og var talið hið glæsilegasta á gervöllum Norðurlöndum.“
Ekki þykir forsvaranlegt að eyða frekari fjármunum í hárið að óbreyttu auk þess sem mælt er með að það verði tekið af auglýsingamarkaði hið fyrsta og í kjölfarið selt einkaaðilum.
S.O.S
Er tilbúinn til að greiða vel fyrir afnot af vatnssalerni, einu sinni í viku. Valdi spíri.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.