Frétt — Enter — 25. 3. 2015
Ritskoðunarróbót Twitters fékk taugaáfall vegna FreeTheNipple
Ef grannt er skoðað má sjá glitta í fáeinar gljáandi geirvörtur á róbótnum.

Ritskoðunarróbót samfélagsmiðilsins Twitters liggur nú þungt haldinn eftir að hafa fengið taugaáfall í dag.

Þegar hann hóf störf um miðjan dag blöstu við honum ógrynni geirvarta, af öllum stærðum og gerðum undir kassmarkinu #freethenipple, sem stendur fyrir svokallað „spenfrelsi“.

Varð þjarkinum svo um þetta að hann féll í djúpsvefn sem ómögulegt hefur reynst að vekja hann úr.

Benti reyndur forritari þó á að mögulega hafi róbótinn áttað sig á því hversu fáránleg ritskoðun á myndum af mjólkurkirtlum valdra spendýra er — og einfaldlega slökkt á sér í mótmælaskyni.

Hvítþvottur

Tökum að okkur vandaðan hvítþott fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Mikið úrval af fyrirtaks hreinsiefnum. Fullum trúnaði heitið.

Þvottahús Þórmundar og Tuma

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: