Frétt — Enter — 1. 10. 2014
Vallajógúrt bolað af markaði
Valgeir í hústökuverksmiðju sinni í kjallara Þjóðmenningarhússins.

Valgeir Valdísarson, mjólkurgerðarmeistari, er allt annað en sáttur við samkeppni á mjólkurmarkaði. Hann heldur því fram að honum hafi markvisst verið bolað af markaði af markaðsráðandi öflum.

„Ég var með toppvöru, Vallajógúrt, eðaljógúrt úr dýrindis hráefni. Þetta fékk hvergi inni og mér var bara mætt með dónaskap og skætingi,“ segir Valli, allt annað en kátur.

Hann telur að sú staðreynd að jógúrtið er unnið úr refamjólk hafi ekkert með málið að gera. „Góð mjólk er góð mjólk, það er bara þannig.“

Hann telur sig þó hafa snúið á mjólkurmafíuna, en hann hyggst markaðssetja jógúrtið upp á nýtt sem „grænt og náttúruvænt lúxustannkrem“.

Baddi

takk fyrir að lúlla hjá mér á aðfangadag. Simmi.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: