Frétt — Enter — 16. 2. 2014
RÚV íhugar gerð framhaldsviðtals
Gísli og Simmi, meðan allt lék í lyndi.

Viðtal Gísla Marteins við Sigmund Davíð hefur fengið mikla athygli í dag.

Það kemur því ekki á óvart að RÚV íhugar nú að ráðast í gerð framhaldsviðtals — en framhaldsmyndir njóta oft sem kunnugt er sömu ef ekki meiri vinsælda en þær fyrstu.

Vitað er að Gísli Marteinn er mjög áhugasamur, en ekki er ljóst hvort Sigmundur er tilbúinn að endurtaka hlutverk skúrksins.

Atvinna

Lykilstjórnendur óskast. Engin vinna – frábært kaup. A.v.á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: