Frétt — Enter — 2. 1. 2014
Leita réttar síns
Mennirnir fengu sem betur fer nóg að drekka.

Tveir karlmenn á níræðisaldri leita nú réttar síns.

Þeir pöntuðu báðir kjötbollur í brúnni sósu á ónefndum veitingastað í gærkvöldi. Rétturinn er í miklu uppáhaldi hjá þeim báðum.

Í morgun hafði hann ekki enn borist og tóku mennirnir því að ókyrrast.

Undir hádegi fóru þeir svo að leita. Án árangurs.

Aðstoð

við böðun og lámarks hreinlæti tveggja miðaldra karlmanna óskast. Bæði kyn koma til greina. A.v.á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: