Frétt — Enter — 7. 1. 2013
Geitungabú í þrot
Búið var með höfuðstöðvar á besta stað í miðbænum.

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur lokið skiptum á þrotabúi eignarhaldsfélagsins Geitungasmiðjan ehf.

Engar eignir fundust í búinu en félagið skuldaði rúmar 330 milljónir króna þegar það fór í þrot, enda reyndist eftirspurn eftir á lúxus-vespuhunangi minni en áætlanir gerðu ráð fyrir, eða engin.

Er varað sérstaklega við óánægðum starfsvespum búsins, en þeim var öllum sagt upp — og eru því í talsverðu ójafnvægi.

Til sölu

Vel með farinn fimmþúsundkall. Aðeins beyglaður efst í vinstra horni. Tilboð óskast.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: