Háhyrningurinn og undrahvalurinn Keikó mun flytjast til Hveragerðis í vor. Þetta var ákveðið á fundi samtakanna "World Keiko fund for Nature" og Þróunarfélags Hveragerðis, sem meðal annars stóð að byggingu Jólasveinalands og Leirheims. Vegna þessa verður heimsins stærsta fiskabúri komið fyrir þar sem áður stóð Tívólí Hvergerðinga og hefur það þegar verið hannað. Hvergerðingar gera ráð fyrir milljónum ferðamanna í hverjum mánuði til að skoða frægasta hval í heimi og hafa þegar hafið framkvæmdir við 150 hótel í bænum og 12 verslunarmiðstöðvar.
Viðarsúla afhjúpuð í Friðey
En þér er heldur ekki boðið þangað.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.