Frétt — Enter — 21. 11. 2012
Dönsk aðalönd finnst örend í kjallara Seðlabanka
Öndinni voru gerð góð skil í mötuneyti Seðlabanka.

Dauð önd fannst í gullforðageymslu Seðlabanka í morgun. Öndin, sem líklega er aðalönd, var klædd í rauðan frottéslopp og skildi eftir sig bréf, sem ritað var á bjagaðri dönsku.

Þar segist hún hafa farið mjög illa út úr hinu svokallaða hruni og misst allt sitt — en langað til að fá sér „einn lokasundsprett“.

Öndin hafði kramist til bana þegar stæða af gullstöngum féll á hana í bægslaganginum.

Til sölu

vel með farnir, lítið notaðir sjömílnaskór. Á sama stað fást gefins óskasteinn og fjöregg. Afgreiðsla vísar á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: