Frétt — Enter — 15. 10. 2012
Segja Íslendinga vælandi feitabollur með lítil typpi
Konurnar hafa mikinn áhuga á fótblota, en lítinn á Íslandi.

Enn hefur komið upp alvarleg milliríkjadeila milli albanskra og íslenskra stjórnvalda.

Nú hafa ummæli tveggja eldri albanskra saumakvenna komist í hámæli, en þær létu hafa eftir sér í fjölmiðlum eftir leik Íslands og Albaníu að Íslendingar væru vælandi mömmustrákar og feitabollur með lítil typpi í ofanálag.

Albönsk stjórnvöld hafa beðist afsökunar á ummælum kvennanna og segja þau slitin úr samhengi. Þau væru aðeins byggt á reynslu þeirra af íslenska landsliðinu í knattspyrnu, en ættu ekki við um þjóðina í heild.

Ógæfumenn

Gómsætu sprittkertin komin aftur. A.v.á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: