Hjónin Sveinn og Finnbjörg, sem bæði eru miklir áhugamenn um beislun jarðvarma hafa komið upp afar fullkomnu kjarnorkuveri í kjallaranum heima hjá sér.
Að sögn Sveins hafa þau unnið að þessu frá árinu 1985 með hléum eða frá því að þau fundu leka í gömlu hitaveituröri á lóð sinni. "..þetta er vissulega fjárfrekt hobbý, en skemmtilegt og vel þess virði. Við erum kannski ekki með fullkomnasta eða öruggasta verið í Evrópu, en þetta er mjög frambærilegt svona amatörver"
Þau hjónin ætla að taka á móti gestum í dag og á morgun og sýna afrakstur erfiðisins. Áhugasamir eru beðnir um að vera í hlífðarfatnaði.
Dætur
tvær dætur mínar á sextugsaldri fást gefins. Einnig á sama stað ættleiddur ónytjungur á fimmtugsaldri. A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.