Frétt — Kaktuz — 10. 3. 2002
Hestur skipaður lögmaður Færeyinga
Snörli kannar aðstæður í Klakksvík

Gæðingurinn Snörli frá Mæki var í dag skipaður nýr lögmaður Færeyinga. Er það samdóma álit dönsku ríkisstjórnarinnar að Snörli sé vel til þess fallinn að sinna málefnum Færeyja, enda sé hann ákaflega blíð og áreiðanleg skepna.

Haft var samband við íslenska ráðamenn í gær og rætt um hugsanleg afnot á sóttkvínni í Hrísey fyrir hinn nýbakaða lögmann.

Jólasveinn óskast

til að skemmta eldri karlmanni, með nánari kynni í huga. Reykingar engin fyrirstaða.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: