Frétt — Enter — 6. 5. 2012
Hollandaise nýr forseti Frakklands
Nýi forsetinn þykir bragðdaufari en fyrirrennari hans, en um leið matarmeiri.

Fréttir frá útlöndum herma að Frakkar hafi kosið sér nýjan forseta.

Franska þjóðin hefur löngum verið veik fyrir hvers kyns mat og drykk og oftsinnis hallað sér að matseld þegar á móti blæs. Því kemur það fáum á óvart að Frakkar hafi valið hina ljúffengu Hollandaise sósu til að leiða þjóðina á erfiðum tímum.

Mun þetta vera í fyrsta skipti sem fljótandi frambjóðandi nær kjöri í Frakklandi, en þess má þó geta að fyrirrennari Hollandaise var af flestum talinn alger gufa.


Flakkarar

Ný sending af flökkurum. Mikið geymslurými. Haldi frá áfengi og heimasætum. A.v.á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: