Vésteinn Möller fannst látinn á heimili sínu í morgun. Hann dó úr leiðindum. Að sögn kunnugra lifði Vésteinn sérlega viðburðasnauðu lífi. Hann var lengst af rukkari fyrir Þjóðviljann en seinna vann hann sem prófarkalesari auk þess sem hann talsetti „Maður er nefndur“ fyrir norskt sjónvarp.
Það sem gerði útslagið virðist þó hafa verið sjálft Internetið. Vésteinn virðist hafa ætlað að nýta sér það til að létta sér lund, en það fór augljóslega ekki vel.
Þegar tengdamóðir hans kom að honum í morgun blasti við á tölvuskjánum vefsíðan kistan.is.
Orðabók
Óska eftir að kaupa íslensk-klingonska orðabók hið fyrsta. A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.