Frétt — Myglar — 7. 3. 2002
Mætti í sömu jakkafötunum tvo daga í röð
Jón Ásgeir í gömlu jakkafötunum

Sá fáheyrði atburður átti sér stað nú í morgun að Jón Ásgeir Jóhannesson forstjóri Baugs mætti í vinnuna í sömu jakkafötum og í gær. "Þetta kom okkur algjörlega í opna skjöldu, ég vona bara að fyrirtækið sé ekki að fara á hausinn" sagði skrifstofustúlka hjá Baugi sem ekki vildi láta nafns síns getið. Sérfræðingar á fjármálamarkaði túlka þetta á þann veg að Jón hljóti að standa afar höllum fæti í valdabaráttunni innan Íslandsbanka.

Þess er nú beðið með mikilli eftirvæntingu hvort Jón Ásgeir muni einnig þvo sér um hárið, en það væri talið augljóst merki um fallandi veldi þeirra Bónus-feðga.

Ný sending

Kúamjólkin vinsæla komin í verslanir okkar.
Kjörval

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: