Landsmenn eru flestir í skýjunum með jólagjöfina í ár, iPad2, en henni var dreift inn á öll heimili fyrir jólin.
Eftir því sem næst verður komist ríkti almenn ánægja með gjöfina, sérstaklega fannst fólki gaman í Angríbörds og Tænítáver, auk þess að horfa á jútúb meðan það var í jólaboðum.
Ekki er vitað til að menn hafi fengið annað í jólagjöf, fyrir utan einn lífeyrisþega á Hofsósi, sem fékk Arnald.
Biskup
á besta aldri, reyklaus, óskar eftir að kynnast flotaforingja. Með nánari kynni í huga.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.